Bush vill ekki fund með Gore

George W. Bush hafnaði því alfarið að funda með Gore.
George W. Bush hafnaði því alfarið að funda með Gore. AP

Al Gore, varaforseti Bandaríkjanna, og George W. Bush ávörpuðu bandarísku þjóðina í sjónvarpi í gærkvöldi. Þeir ræddu kosningaflækjurnar í Flórída. Al Gore stakk upp á því að þeir George W. Bush hittust til að bæta samskiptin sín á milli áður en talningu atkvæða lyki. Bush hafnaði því alfarið, en sagðist gjarnan vilja hitta hann þegar úrslit kosninganna lægju fyrir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert