NULL

Hæstiréttur í Bretlandi ógilti í dag handtökuheimild sem breska lögreglan aflaði sér á hendur Augusto Pinochet, fyrrverandi einræðisherra Chile, á grundvelli framsalskröfu frá Spáni. Dómstóllinn ógilti handtöku Pinochets á þeirri forsendu að hann væri friðhelgur. Einræðisherrann fyrrverandi verður hins vegar að dvelja áfram í varðhaldi í Bretlandi þar til ákveðið verður hvort niðurstöðu dómsins verður áfrýjað.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert