[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Marry Schindler, móðir Terri Schiavo, og Suzanne Vitadamo, systir hennar koma frá spítalanum þar sem Terri liggur.

Marry Schindler, móðir Terri Schiavo, og Suzanne Vitadamo, systir hennar koma frá spítalanum þar sem Terri liggur. AP

Erlent | AP | 26.3.2005 | 16:20

Foreldrar Schiavo munu ekki áfrýja

Foreldrar Terri Schiavo hafa lýst því yfir að þau muni ekki áfrýja niðurstöðu dómara um þá ákvörðun að taka slöngu sem gefur henni næringu úr sambandi. Þetta felur í sér að þeira síðasta von er hjá ríkisdómaranum George Greer, sem hefur komið að málinu á fyrri stigum og synjaði þá beiðni þeirra. Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur hafnað því að taka málið upp.

Niðurstöðu Greers er að vænta fljótlega. Búist er við því að hann dæmi málið á þann veg að slangan verði fjarlægð þar sem málið hefur komið fyrir hann áður og komst hann þá að þeirri niðurstöðu að slönguna mætti fjarlægja.

Schiavo hefur verið haldið á lífi í 15 ár. Foreldrar konunnar hafa farið fram á að slangan verði sett aftur í samband, en eiginmaður Schiavo fór fram á að hún yrði tekin úr sambandi.

Þrír dómarar í Atlanta komust að þeirri niðurstöðu á föstudaginn að hafna beiðni um að endurtengja slönguna, sem var fjarlægð 18. mars sl. Foreldrar konunnar, Bob and Mary Schindler, höfðu áður gefið út þá yfirlýsingu að þau myndu áfrýja málinu, en drógu þá yfirlýsingu til baka í dag. Þau gáfu ekki upp ástæðuna fyrir því að hafa skipt um skoðun.

Ástand Schiavo fer hríðversnandi enda hefur hún nú verið án næringar í nokkra daga.

Bob Schindler, faðir Terri, biðlaði til Jeb Bush, fylkisstjóra, um að taka við forræði dóttur þeirra meðan málið væri til meðferðar, en Bush hafnaði því með þeim rökum að hann vildi ekki fara út fyrir valdsvið sitt með þeim hætti. Bush, líkt og bróðir sinn, George W., hefur þó stutt foreldranna í baráttu þeirra.

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær