
Lögreglukona leggur blómvönd í blómahafið á götum Lundúnaborgar. AP
Þrír einstaklingar handteknir á Heathrow flugvelli
Lögregluyfirvöld á Bretlandi hafa staðfest að þrír einstaklingar hafi verið handteknir á Heathrow-flugvelli í London í dag með vísan í lög gegn hryðjuverkum. Ekki hefur hins vegar verið staðfest að handtökurnar tengist hryðjuverkaárásunum í borginni á fimmtudag. Charles Clarke innanríkisráðherra Bretlands, staðfesti hins vegar í dag að yfirvöld óttist frekari hryðjuverkaárásir í landinu.
„Við óttumst að sjálfsögðu frekari árásir uns okkur hefur tekist að elta uppi glæpagengið sem framdi voðaverkin á fimmtudag og því höfum við gert það að forgangsverkefni að handsama tilræðismennina,” sagði Clarke í sjónvarpsviðtali í dag. Brian Paddick, aðstoðarlögreglustjóri í London, greindi frá handtökunum á Heathrow á fréttamannafundi í dag en sagði jafnframt að það væri „óviðeigandi og úr lausu lofti grípið að ætla að bein tengsl væru á milli þeirra og hryðjuverkanna á fimmtudag.
Til baka








Senda inn efni

