Dauðvona sjúklingur sem eyddi aleigunni var ranglega greindur með krabbamein
Bloggað um fréttina
-
Grétar AmazeenHvernig væri...
-
Jónas Björgvin AntonssonWin Win
-
Jóna Á. GísladóttirDauðvona sjúklingur eða bara sjúklingur?
-
Björn Emil TraustasonDauðvona sjúklingur sem eyddi aleigunni var
-
Guðríður HaraldsdóttirDýrkeypt fljótfærni
-
Ingveldur Lára ÞórðardóttirÁgætis áminning
-
Jóhannes RagnarssonFramsókn ekki dauðvona - því er nú ver.
-
BáranHvers virði er lífið?
-
Þorsteinn GunnarssonYndileg frétt og ekkert smá skemmtileg
-
Anna Ólafsdóttir (anno)Það er þetta með verðmætamatið
-
Benedikt HalldórssonVondar og góðar fréttir.
-
Þorsteinn Valdimarssonnei heyrðu, smá mistök, þú ert víst ekkert að
Breskur maður hefur kært heilbrigðisyfirvöldin í heimalandi sínu fyrir að hafa ranglega greint hann með krabbamein í brisi og sagt honum að það myndi draga hann til dauða á skömmum tíma. John Brandrick hætti að greiða af húsnæðisláninu sínu og tók upp dýra og munúðlega lifnaðarhætti á hótelum og veitingastöðum. Síðar kom í ljós að æxlið var góðkynjað og Brandick ekki dauðvona.
Á Royal Cornwall sjúkrahúsinu í Treliske hafði reyndar greinst stórt æxli en samkvæmt Sky fréttastofunni var Brandick síðar sagt að æxlið væri góðkynjað.
Brandic sagðist hafa eytt aleigunni á einu ári því hann hélt hann væri dauðvona, nú á hann á hættu að missa húseign sína.
Til baka








Senda inn efni

