
Auglýsing með forsíðu tímaritsins Wprost með samsettri mynd af Angelu Merkel og tvíburunum pólsku Jaroslaw og Lech Kaczynski. Reuters
Reiði yfir berbrjósta Angelu Merkel með forseta og forsætisráðherra Póllands
Bloggað um fréttina
-
Valgerður HalldórsdóttirAf hverju stjúpmóðir?
-
Alma Joensenmyndi einhverjum detta í hug að setja mynd af Bush
Fjölmargir þýskir stjórnmálamenn hafa fordæmt forsíðumynd á pólska vikutímaritinu Wprost. Þar sjást tvíburarnir Jaroslaw Kaczynski, forsætisráðherra Póllands og Lech Kaczynski,forseti landsins, sjúga brjóst Angelu Merkel,kanslara Þýskalands.
Yfirskrift forsíðunnar er "Stjúpmóðir Evrópu" og hefur pólsk siðanefnd blaðamanna lýst því yfir að birting tölvugerðar myndarinnar fara út yfir öll velsæmismörk. Utanríkisráðherra Þýskalands,Frank-Walter Steinmeier, sagði myndina smekklausa.
Spenna milli Póllands og Þýskalands hefur aukist í kjölfar fundar Evrópusambandsins í síðustu viku. Pólverjar kröfðust þess á fundinum að fá aukið vægi í atkvæðagreiðslum á vegum Evrópusambandsins og hótuðu að neita að skrifa undir nýjan samning sambandsins sem gæfi stærri löndum á borð við Þýskaland, of mikið ákvarðanavald. Inn í þær umræður blönduðu Pólverjar þjáningum Pólverja í tíð nasista í Seinni heimstyrjöldinni sem mörgum þóttu afar óviðeigandi.
Pólland náðu að lokum að sannfæra Merkel um að fresta því að taka upp ákvæði um breytingu á nýju atkvæðakerfi þar til 2014.
Til baka








Senda inn efni

