[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Stór landsvæði eru nú undir vatni.

Stór landsvæði eru nú undir vatni. Reuters

Erlent | mbl.is | 23.7.2007 | 13:14

Hundruð þúsunda Englendinga verða brátt án neysluvatns og rafmagns

Flóðin á Englandi eru á meðal þeirra mestu sem mælst hafa í landinu sl. 60 ár. Stór landsvæði eru nú undir vatni og hundruð þúsunda Englendinga verða brátt án neysluvatns og rafmagns. Umhverfisstofnun landsins hefur sent út níu viðvaranir vegna flóðahættu. Stór hluti Worcesterskíris, Gloucesterskíris og Warwickskíris er nú undir vatni eftir úrhellið sem verið hefur undanfarna daga. Þá fer vatnsyfirborð áa víða hækkandi.

Víða nær vatn á götum úti fólki upp að mitti.

Víða nær vatn á götum úti fólki upp að mitti. Reuters

„Þetta neyðarástand er ekki að baki [...] vegna þess að vatnið sem hefur fallið af himnum ofan rennur nú niður árfarvegina,“ sagði Hilary Benn, umhverfisráðherra Bretlands í samtali við BBC.

Áin Severn hefur bólgnað út en vatnsyfirborðið er fimm metrum hærra en venjulega á þessum árstíma. „Við höfum ekki séð flóð í líkingu við þetta áður,“ sagði talsmaður umhverfisstofnunar. Flóðin nú eru þau mestu frá árinu 1947.

Þá hefur hefur vatnsmagnið í ánni Thames aukist mikið af völdum mikilla rigninga og hefur vatnið runnið í ána í gegnum Oxfordskíri. Á föstudag mældist úrkoman vera rúmir 12 cm, en hún hefur ekki mælst meiri frá því mælingar hófust á svæðinu árið 1968.

Blogg Einars Sveinbjörnssonar um rigningarnar

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars