
Það eru fáir jafn mikið fyrir bjór og Þjóðverjar Reuters
Lestin stöðvuð vegna bilaðrar bjórdælu
Bloggað um fréttina
-
Anna Ólafsdóttir (anno)Talandi um Þjóðverja
Þýskir aðdáendur fótboltaliðsins Bayern Leverkusen eru vafalaust þakklátir fyrir þá góðu þjónustu er þeir fengu þegar þeir tóku lest til Hamborgar í gærdag. Lestin var full af áhangendum liðsins, sem hugðust sjá bikarleik liðsins gegn liðinu St. Pauli í gær. Skömmu eftir að lestin lagði af stað kom í ljós að bjórdælan um borð var biluð, farþegunum til skelfingar.
Gripið var til þess ráðs að stöðva lestina í bænum Wuppertal í 25 mínútur meðal varahlutur var sendur með leigubíl til að bjarga ferðalagi fótboltaunnendanna.
Liðið olli hins vegar aðdáendum vonbrigðum, það féll úr bikarkeppninni með því að tapa með einu marki gegn engu.
Til baka








Senda inn efni