Varð tveimur hjólreiðamönnum að bana

Lögregla í Danmörku leitar nú að ökumanni bíls, sem ók á tvo 25 ára gamla hjólreiðamenn á Friðriksbergi í Kaupmannahöfn aðfaranótt laugardags. Mennirnir tveir létust báðir af sárum sínum.

Mennirnir tveir voru í samfloti þegar ekið var á þá á H.C. Ørstedsvej. Sjónvarvottar segja, að bíllinn hafi verið grár leigubíll.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert