Ísraelar hóta Palestínumönnum helför

Palestínsk ungmenni brenna hjólbarða við Erez landamærastöðina á landamærum Ísraels …
Palestínsk ungmenni brenna hjólbarða við Erez landamærastöðina á landamærum Ísraels og Gasasvæðisins AP

Ísraelsk yfirvöld hafa varað íbúa Gasasvæðisins við því að vítiseldar muni brenna haldi herskáir Palestínumenn áfram að skjóta flugskeytum að borginni Ashkelon í suðurhluta Ísraels. Hefur Matan Vilnai, aðstoðarvarnarmálaráðherra Ísraels, jafnvel líkt því sem í vændum er við helför gyðinga á tímum síðari heimsstyrjaldarinnar. Þetta kemur fram á fréttavef BBC.

„Eftir því sem árásunum fjölgar og flugskeytin verða langdrægari, kalla þeir yfir sig stærri helför því við munum nota allan okkar mátt til að verja okkur, sagði Matan Vilnai í útvarpsviðtali í morgun. Mjög sjálfgæft er að hebreska orðið yfir helförina sé notað um annað en þjóðarmorð nasista gegn gyðingum á tímum síðari heimsstyrljalcdarinnar.

 Ísraelar hafa nú  virkjað loftvarnakerfi Ashkelon í fyrsta skipti frá því flugskeytaárásirnar hófust en flugskeyti lenti á fjölbýlishúsi í borginni í morgun og fór í gegnum þak þess og þrjár hæðir. Þrjátíu Palestínumenn, þeirra á meðal sex börn, hafa látið lífið í loftárásum Ísraelshers á Gasasvæðinu.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert