Elsta vændishúsi Hamborgar lokað

Hefðbundin vændishús virðast eiga undir högg að sækja í Hamborg.
Hefðbundin vændishús virðast eiga undir högg að sækja í Hamborg. mbl.is/Árni Torfason

Elsta vændishúsinu í rauða hverfinu í Hamborg verður lokað innan tíðar vegna skorts á viðskiptavinum. Hotel Luxor var stofnsett 1948 en hefur verið selt fjárfesti sem ætlar ekki að halda rekstrinum áfram.

Í samtali við Hamburg Morgenpost og Bild kenndi frú Waltraud Mehrer, forstöðukona vændishússins, meðal annars auðfengnu klámi á netinu um lægð í viðskiptunum sem og auknum umsvifum símavændiskvenna og nefndi að líka að hávær diskótek og dansstaðir í St Pauli hverfinu fældu viðskiptavinina frá hinu hefðbundna vændishúsi.

Rekstur vændishússins stóð í hvað mestum blóma á áttunda áratug síðustu aldar er það var opið alla daga vikunnar með 12 vændiskonur í vinnu. Nú er einungis opið frá þriðjudegi til fram á föstudagskvöld og 4 konur starfa þar.


mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert