[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Tian Wenhua, fyrrum forstjóri fyrirtækisins Sanlu

Tian Wenhua, fyrrum forstjóri fyrirtækisins Sanlu AP

Erlent | mbl.is | 2.1.2009 | 11:34

Biðjast afsökunar með SMS

Kínverskir mjólkurframleiðendur, sem tengjast framleiðslu á menguðum mjólkurvörum á síðasta ári hafa sent nokkrar milljónir smáskilaboða í síma þar sem fólki er óskað gleðilegs árs og það beðið afsökunar á málinu. Þetta kemur fram á fréttavef BBC. 

„Við hörmum einlæglega þann skaða sem við höfum valdið börnunum og samfélaginu öllu,” segir í skilaboðunum sem send eru í nafni 22 mjólkurframleiðslufyrirtækja. „Við biðjumst innilega afsökunar og grátbiðjum ykkur um fyrirgefningu.” 

Þá segir að styrktarsjóður hafi verið stofnaður fyrir fjölskyldur þeirra barna sem verst hafa orðið úti en þúsundir barna þjást enn af afleiðingum mengunarinnar, aðallega nýrnabilunum og alvarlegum þvagfærasýkingum. 

Að minnsta kosti sex smábörn létu lífið í landinu á síðasta ári og 290.000 veiktust eftir að hafa neytt mjólkurdufts sem blandað var efninu melamín. Efnið er bannað í matvælaframleiðslu en því var blandað í mjólkurduftið til að það virtist innilafa meira prótín en það gerði í raun og veru. 

Tian Wenhua, fyrrum forstjóri fyrirtækisins Sanlu, hefur lýst sig seka um að selja falsaða vöru fyrir rétti og er talið að hún muni hljóta lífstíðar fangelsisdóm vegna málsins. Áður hafði verið talið líklegt að ún yrði dæmd til sauða vegna málsins en það virðist nú ólíklegt. Sautján voru ákærðir vegna melamín-mála í Kína í síðustu viku

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars