[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Frá eyðileggingunni á Gaza.

Frá eyðileggingunni á Gaza. Reuters

Erlent | mbl.is | 19.3.2009 | 23:06

Ísraelar frömdu voðaverk

Bloggað um fréttina

Ísraelskir hermenn saka hermenn úr sínum röðum um að hafa unnið voðaverk í átökunum á Gaza á fyrstu vikum ársins. Meðal þess sem kemur fram í vitnisburðum hermannanna er að ísraelsk leyniskytta hafi skotið á móður og barn eftir að hafa verið kallaður af vettvangi.

Skaut hann mæðginin af stuttu færi.

Þá skaut annar ísraelskur hermaður palestínska konu með köldu blóði af tilefnislausu.

Þessar frásagnir komu fram í vitnisburðum útskriftarnema ísraelska herskólans Oranim College sem tóku þátt í hernaðinum á Gaza.

Lýstu þeir atvikum frammi fyrir nýliðum í skólanum, að því er fram kemur á fréttavef breska útvarpsins, BBC.

Þykja frásagnirnar vekja spurningar um yfirlýsingar Ísraelshers um að þess hefði verið gætt að vernda óbreytta borgara á Gaza.

Með líku lagi séu ásakanir um að Hamas-liðar hafi notað mannleg skotmörk veikari ef rétt reynist að óbreyttir borgarar hafi verið myrtir af ástæðulausu. 

Í þriðja tilvikinu skipaði ísraelskur herforingi að gömul palestínsk kona skyldi skotin til bana, þrátt fyrir að greinilegt væri að engin hætta stafaði af henni.

Þá fylgir sögunni að hermennirnir hafi fengið blöðunga frá rabbíum þar sem átökin hafi verið sett í trúarlegt samhengi, hermennirnir væru að vinna aftur hið heilaga land.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Miðvikudaginn 17. mars