
Frá Dakar í Senegal. CLAIRE SOARES
Lík samkynhneigðs manns grafið upp í tvígang
Bloggað um fréttina
-
Friðrik Árni FriðrikssonGátu menn ekki bara sleppt myndinni?
Lík manns sem talinn er hafa verið samkynhneigður hefur í tvígang verið grafið upp úr múslimskum grafreit í Senegal. Maðurinn, sem var á fertugsaldri, var fyrst jarðsettur á laugardag, en grafinn upp af íbúum bæjarins Thies. Líkið var skilið eftir nálægt gröfinni, að sögn lögreglu í bænum.
Fjölskylda mannsins lét þá grafa hann aftur, en hann var þá grafinn upp aftur af fólki sem vildi ekki að hann fengi hinstu hvílu í grafreitnum. Í það skiptið var lík hans skilið eftir fyrir utan hús fjölskyldunnar. Í Senegal er kynlíf samkynhneigðra ólöglegt, en þar er þó hefð fyrir því að viðurkenna kvenlega menn.
„Karlkonur“ eða goor-jiggen á frummálinu, karlar sem klæða sig eins og konur og haga sér eins og þær, hafa lengi verið umbornir í Senegal, þar sem meirihluti fólks aðhyllist íslam. Hins vegar virðast viðhorf í landinu gagnvart klæðskiptingum vera að breytast.
AFP fréttastofan greinir frá því að klerkar þar í landi, ásamt sumum dagblöðum og útvarpsstöðum, hafi fordæmt samkynhneigða eftir að áfrýjunardómstóll sýknaði í síðasta mánuði níu manns af ákærum um samkynhneigð. Þeir höfðu verið dæmdir í átta ára fangelsi í undirrétti eftir að hafa verið fundnir sekir um ósæmilega hegðun og ónáttúru, eins og það var orðað.
Í febrúar árið 2008 fékk ritstjóri tímarits í Senegal morðhótanir eftir að hann birti myndir sem sagðar voru sýna brúðkaup tveggja karla.
Til baka








Senda inn efni

