[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Skipholt, 105 Reykjavík Skipholt Reykjavík
Kársnesbraut, 200 Kópavogur Kársnesbraut Kópavogur
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Ástún, 200 Kópavogur Ástún Kópavogur
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Grænahlíð, 105 Reykjavík Grænahlíð Reykjavík
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Sólbaðsstofa, 110 Reykjavík Sólbaðsstofa Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Frá Teheran þar sem mikil mótmæli fóru fram í gær.

Frá Teheran þar sem mikil mótmæli fóru fram í gær. Reuters

Erlent | AFP | 14.6.2009 | 07:20

Umbótasinnar handteknir í Íran

Öryggissveitir í Íran handtóku að minnsta kosti tíu leiðtoga umbótasinna í landinu í nótt eftir að til átaka kom á götum úti í Teheran í gær í kjölfar þess að yfirburðasigri Mahmoud Ahmadinejad, forseta landsins, var lýst yfir í forsetakosningum.

Um hundrað umbótasinnar til viðbótar eru sagðir hafa verið handteknir og a.m.k. einn mótmælandi er sagður hafa fallið fyrir byssukúlu lögreglu í gær.

Helsti keppinautur hans Hossein Mousavi sakaði yfirvöld um kosningasvindl eftir að úrslitin voru kynnt í gær en sigur Ahmadinejad (63%) var mun meiri en allar spár höfðu gefið til kynna.

Á meðal hinna handteknu eru nánir samstarfsmenn Mohmmad Khatami, fyrrum forseta landsins sem er yfirlýstur stuðningsmanns Mousavi.

Þúsundir manna tóku þátt í mótmælaaðgerðum í Teheran í gær og kveiktu þeir m.a. í bílum og opinberum byggingum.

Ahmadinejad hvatti í gær stuðningsmenn sína til að fjölmenna í miðborgina í dag og fagna sigrinum. Talið er að hann muni þá ávarpa þjóðina.

Khamenei, æðstiklerkur Írans, fagnaði einnig sigri Ahmadinejad í gær og hvatti þjóðina til að sameinast að baki honum.

Kosningabaráttan nú þótti hins harðasta í landinu frá íslömsku byltingunni árið 1979.

Farsímasamband lá niðri í borginni í gær en er nú komið á í hluta hennar. Þá var um tíma lokað fyrir netaðgang.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars