Varað við raðmorðingja í Suður Karólínu
Lögregla hefur staðfest að raðmorðingi gangi laus í bænum Gaffney í Cherokee í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum. Fimmtán ára stúlka sem lést í gær var fimmta fórnarlamb mannsins. Þetta kemur fram á fréttavef CNN.
Maðurinn skaut á stúlkuna og föður hennar í húsgagna- og verkfæraverslun fjölskyldu þeirra á fimmtudag og lét faðir hennar lífið í árásinni.
Birt hefur verið teikning af morðingjanum byggð á framburði vitna að árásunum. Auk feðginanna hefur maðurinn drepið 83 og 50 ára mæðgur sem hann batt á heimili annarrar þeirra áður en hann skaut þær og 63 ára ávaxtabónda, sem einnig var skotinn á heimili sínu.
„Samkvæmt skilgreiningu alríkislögreglunnar FBI þá er þetta raðmorðingi já, segir Bill Blanton, lögreglustjóri í Gaffney. Hann vildi þó ekki veita upplýsingar um það hvort vitað sé hvernig maðurinn veldi fórnarlömb sín en hvatti alla íbúa svæðinu til að vera vara um sig og fylgjast með ættingjum sínum. Hann varaði þó einnig við því að fólk færi að skjóta á þá sem þeim þættu grunsamlegir.
Um 54.000 íbúar búa í bænum sem er suðvestur af borginni Charlotte í Norður-Karólínu.
Um hundrað lögreglumenn vinna að rannsókn málsins.
Til baka








Senda inn efni