
Wolfgang Amadeus Mozart.
Tvö verk finnast eftir Mozart
Bloggað um fréttina
-
Þráinn MaríusOg legg ég hér með til,,,,,,,,,,,
Alþjóðlega Mozart-stofnunin í Salzburg tilkynnti í dag að uppgötvast hefðu tvö ný tónverk eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
„Rannsóknardeild stofnunarinnar hefur nú uppgötvað að tvö tónverk, sem lengi hafa verið í höndum stofnunarinnar, séu eftir Wolfang Amadeus Mozart,“ sagði í tilkynningu frá stofnunni án frekari upplýsinga.
Verkin tvö verða flutt annan ágúst á fundi fyrir fjölmiðla.
Alþjóðlega Mozart-stofnunin leitast við að varðveita arfleið undrabarnsins og tónskáldsins Mozart. Stofnunin rannsakar jafnframt verk hans og skipuleggur tónleika.
Mozart fæddist 1756 í Salzburg og hóf tónsmíðar aðeins fimm ára gamall.
Til baka








Senda inn efni

