[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  6.2.2010
2 16 20 30 33 14
Jóker
5 4 6 0 5  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Vesturgata, 101 Reykjavík Vesturgata Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Hringbraut, 107 Reykjavík Hringbraut Reykjavík
Tómasarhagi, 107 Reykjavík Tómasarhagi Reykjavík
Lækjarvað, 110 Reykjavík Lækjarvað Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Álftröð, 200 Kópavogur Álftröð Kópavogur
Kirkjuvellir, 220 Hafnarfjörður Kirkjuvellir Hafnarfjörður
Leynir Kaldakinn Lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Leynir Kaldakinn Lóð Selfoss (dreifbýli)
Sumarhús Hallkelshólar, 801 Selfoss (dreifbýli) Sumarhús Hallkelshólar Selfoss (dreifbýli)
Erlent | AFP | 23.7.2009 | 23:32

Lögreglustjórinn ver undirmann sinn

Sæktu Flash-spilarann til að spila myndskeiðið

Lögreglustjórinn í Cambridge í Massachusetts sagði í kvöld að lögreglumaður hefði ekki gert neitt rangt þegar hann handtók Henry Louis Gates, virtan prófessor við Harvard-háskóla. Fyrr í dag hafði Barack Obama, forseti Bandaríkjanna, sagt að lögreglumaðurinn hefði hegðað sér „heimskulega“ þegar hann handtók Gates.

Prófessorinn er blökkumaður og handtakan vakti mikla umræðu þar sem mörgum þótti hún til marks um að staða bandarískra blökkumanna hefði lítið breyst þrátt fyrir kjör Obama í forsetaembættið. Gates var að koma heim úr utanlandsferð fyrir viku og átti í erfiðleikum með að opna dyrnar að heimili sínu í „fínu hverfi“ í Cambridge. Hvíta lögregluþjóninn Crowley bar að eftir að hafa fengið ábendingu um mögulegt innbrot. Crowley bað Gates um staðfestingu á því að hann ætti heima þarna. Gates fyrtist við, spurði hvort ástæðan væri sú að hann væri svartur og bað Crowley um nafn og númer. Að endingu var prófessorinn handtekinn og látinn dúsa í fjóra tíma í fangelsi.

Lögreglustjóri Cambridge, Robert Haas, sagði að lögreglumaðurinn hefði ekki brotið neinar starfsreglur lögreglunnar og kvaðst ekki telja að rekja mætti handtökuna til kynþáttafordóma. Hann sagði þó að verið væri að undirbúa óháða rannsókn á atburðinum.

 

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær