[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Nökkvavogur, 104 Reykjavík Nökkvavogur Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Stuðlasel, 109 Reykjavík Stuðlasel Reykjavík
Sólvallagata, 101 Reykjavík Sólvallagata Reykjavík
Fálkagata, 107 Reykjavík Fálkagata Reykjavík
Grenimelur, 107 Reykjavík Grenimelur Reykjavík
Hryggjarsel, 109 Reykjavík Hryggjarsel Reykjavík
Ólafsgeisli, 113 Reykjavík Ólafsgeisli Reykjavík
Vallarhús, 112 Reykjavík Vallarhús Reykjavík
Sumarhúsalóð, 270 Mosfellsbær Sumarhúsalóð Mosfellsbær
Scheungraber bíður úrskurðarins.

Scheungraber bíður úrskurðarins. Reuters

Erlent | mbl.is | 11.8.2009 | 09:20

Dæmdur til lífstíðar

Þýskur dómstóll hefur dæmt níræðan fyrrverandi hershöfðingja í lífstíðarfangelsi fyrir að fyrirskipa fjöldaaftökur á almennum borgurum í ítölsku þorpi árið 1944. Réttarhöldin eru ein þau síðustu sem haldin eru vegna stríðsglæpa á tímum nasista í Þýskalandi.

Josef Scheungraber var dæmdur fyrir tífalt morð að sögn vefsíðu Spiegel. Sönnunargögn þóttu sýna svo ekki var um deilt að Scheunberger gaf fyrirmæli í Toskana-héraði árið 1944 um að láta myrða ítalska borgara í hefndarskyni fyrir dauða tveggja hermanna. Meðal þeirra sem skotin voru til bana á götum úti var 74 ára gömul kona. Alls féllu fjórtán manns en sönnunargögn dugðu aðeins til að sakfella Scheungraber fyrir dauða tíu þeirra.

Scheungraber hafði búið í bænum Ottobrunn í Bæjaralandi þar sem hann rak verslun og tók þátt í göngum í minningu fallinna hermanna frá tíð nasista. Scheungraber hefur vísað ákærunni á bug í þá ellefu mánuði sem málið hefur verið fyrir rétti.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Sunnudaginn 14. mars
Laugardaginn 13. mars