[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
William Calley ávarpar samkomu í Columbus.

William Calley ávarpar samkomu í Columbus. AP

Erlent | AP | 22.8.2009 | 08:18

Fyrsta afsökunarbeiðni stríðsglæpamanns

Bandaríski herforinginn, sem dæmdur var fyrir aðild að My Lai morðunum svonefndu í Víetnamstríðinu, hefur í fyrsta skipti beðist afsökunar opinberlega. Talið er að bandarískir hermenn hafi myrt 500 karlmenn, konur og börn í My Lai árið 1968.

„Það líður ekki sá dagur, að ég iðrist ekki þess sem gerðist," hefur blaðið  Columbus Ledger-Enquirer eftir William Calley, fyrrverandi liðsforingja. Hann ávarpaði samkomu í Columbus í Georgíu í vikunni.

„Ég iðrast vegna Víetnamanna sem voru drepnir, vegna fjölskyldna þeirra, bandarísku hermannanna sem blönduðust í málið og fjölskyldna þeirra. Mér þykir þetta afar leitt," hefur blaðið eftir Calley.  Hann ítrekaði þó, að hann hefði verið að hlýðnast skipunum yfirmanna sinna.

Bandarísku hermennirnir voru í leiðangri til að leita að skæruliðum Víet Kong. Engir skæruliðar urðu á vegi hermannanna en þeir söfnuðu saman óbreyttum borgurum á svæðinu og skutu þá til bana.

Þegar upplýsingar um My Lai blóðbaðið urðu opinberar rúmu ári síðar breyttist almenningsálitið í Bandaríkjunum og um allan heim og mjög dró úr stuðningi Bandaríkjamanna við hernaðaraðgerðirnar í Víetnam. 

Calley, sem nú er 66 ára,  var dæmdur í ævilangt fangelsi árið 1971 fyrir að myrða 22 breytta borgara í My Lai. Richard Nixon, þáverandi Bandaríkjaforseti, mildaði dóminn í 3 ára stofufangelsi.  Hann bjó í Columbus eftir þetta og vann í skartgripaverslun tengdaföður síns en flutti til Atlanta fyrir þremur árum. Calley hefur til þessa ekki veitt viðtöl um My Lai. 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars