Tvítug kona grýtt til dauða
Bloggað um fréttina
-
Sigurður ÞórðarsonMegi þeir stikna í Helvíti
-
Gunnar SigurðssonBara ef hún hefði verið 36 ára
-
Tómas Ibsen Halldórsson"Sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum"
Íslamistar í Sómalíu grýttu tvítuga fráskilda konu til bana, sem var sökuð um hjúskaparbrot. Um 200 manns fylgdust með því þegar mennirnir köstuðu grjóti í konuna.
Dómari, sem starfar fyrir uppreisnarsamtökin al-Shabab, segir að konan hafi haldið fram hjá með ógiftum 29 ára gömlum karlmanni.
Hún eignaðist andvana barn og var fundin sek um framhjáhald. Kærasti hennar fékk 100 vandarhögg í refsingu.
Fram kemur á fréttavef BBC að talið sé að þetta sé í annað sinn sem al-Shabab grýtir konu til bana. Samtökin stjórna stórum svæðum á suðurhluta Sómalíu. Þar hafa þeir innleitt afar ströng íslömsk lög, sem margir Sómalar eru óánægðir með.
Til baka








Senda inn efni



