Handbók CIA úr kalda stríðinu endurútgefin
Handbók bandarísku leyniþjónustunnar CIA með ráðleggingum til fulltrúa sinna á tímum kalda stríðsins er nú til sölu fyrir almenning. Bókin var skrifuð árið 1953 af töframanninum John Mulholland gegn 3.000 dollara greiðslu CIA, sem var umtalsvert á þeim tíma.
Í handbókinni eru m.a. leiðbeiningar um brögð og blekkingar, s.s hvernig best er að lauma eitri í drykki með því að fela það í eldspýtnapakka og láta það detta í glas óvinarins með því að bjóða honum eld. Þá eru leiðbeiningar um hvernig njósnarar geta átt samskipti með því að binda skóreimarnar á sérstakan hátt og sent skilaboð s.s. “Ég er með upplýsingar” eða “eltu mig”.
CIA gaf út skipun um að bókinni skildi eytt árið 1970, en eitt eintak hennar komst þó undan. Innihald hennar flokkast nú ekki lengur sem trúnaðargögn og hafa sagnfræðingurinn Keith Melton og fyrrum yfirmaður í CIA, Bob Wallace, nú endurútgefið bókina undir titlinum Hinn opinberi leiðarvísir CIA um brögð og blekkingar.
Í formála bókarinnar segir aðstoðarforstjóri CIA, John McLaughlin, að “töfrar og njósnir eigi ýmislegt sameiginlegt. Skrif Mulholland um leynilega lyfjagjöf, eitur og duft, er bara eitt dæmi af mörgum um þær rannsóknir sem gerðar voru á þessum tíma á ólíkum sviðum s.s. heilaþvotti og yfirnáttúrulegri sálarfræði.”
Handbókin var hluti af umfangsmikilli aðgerð CIA sem kallaðist Project MK-Ultra og var beint gegn heilaþvotti Sovétríkjanna á tímum kalda stríðsins. McLaughlin segist þó ekki vita til þess að tæknin við að lauma eitri í glös hafi nokkru sinni verið notuð.
Til baka








Senda inn efni


