

Portúgalskir hermenn sjást hér handtaka sómalska sjóræningja, sem réðust á spænsk skips, á Indlandshafi í lok nóvember. Reuters
Greiddu 300 milljóna lausnargjald
Bloggað um fréttina
-
Hreysikötturinnbara smá pæling
Búið er að greiða sómölskum sjóræningjum tvær og hálfa milljón dali (um 311 milljónir kr.) í lausnargjald fyrir skipið MV Ariana og áhöfn þess, sem eru 24 Úkraínumenn. Skipið er í grískri eigu og hefur verið í haldi sjóræningjanna frá því í maí. Sjóræningjarnir munu brátt sleppa áhöfninni og skipinu.
Einn sjóræningjanna, Mohamed Ilkaase, sagði í símaviðtali við AFP-fréttastofuna að samkomulagið væri í höfn. „Við fengu lausnarféð afhent í snemma í morgun og við munum sleppa skipinu innan fárra mínútna.“
Sjóræningjarnir náðu MV Ariana, sem siglir undir fána Möltu, 2. maí síðastliðinn. Þá var skipið að sigla frá Mið-Austurlöndum til Brasilíu með 10.000 tonn af sojabaunum. Skipum og áhöfnum sem er rænt undan austurströnd Sómalíu er sjaldan haldið svo lengi, og hefur þetta mál því staðið yfir í töluverðan tíma.
Ilkaase segir að deilt hafi verið um lokaupphæðina undanfarnar vikur, en menn hafi síðan sæst á 2,5 milljónir dala.
Abdi Yare, leiðtogi sjóræningjanna, sem dvelur í Harardhere, hefur jafnframt staðfest að skipið verði brátt leyst úr haldi.
Þá hefur Spyros Minas, yfirmaður fyrirtækisins All Ocean Shipping í Aþenu, sem á skipið, staðfest að lausnargjald hafi verið greitt. Hann vildi hins vegar greina frá upphæðinni.
Til baka








Senda inn efni

