[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Spítalastígur, 101 Reykjavík Spítalastígur Reykjavík
Selhólsbraut, 801 Selfoss (dreifbýli) Selhólsbraut Selfoss (dreifbýli)
Arnarheiði, 810 Hveragerði Arnarheiði Hveragerði
Álfhólsvegur, 200 Kópavogur Álfhólsvegur Kópavogur
Bakkastaðir, 112 Reykjavík Bakkastaðir Reykjavík
Fífusel, 109 Reykjavík Fífusel Reykjavík
Laugateigur, 105 Reykjavík Laugateigur Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Pat Robertson.

Pat Robertson.

Erlent | mbl.is | 14.1.2010 | 08:06

Haíti-búar sömdu við djöfulinn"

Bloggað um fréttina

Bandríski sjónvarpsprédikarinn Pat Robertson sagði í gærkvöldi, að Haíti-búar hefðu gert samning við djöfulinn og ættu því sjálfir sök á jarðskjálftanum, sem lagði höfuðborg landsins í rúst á þriðjudagskvöld.  

„Eitthvað gerðist fyrir löngu á Haíti og fólk kann að vilja þegja um það," sagði Robertson í sjónvarpsþætti sínum 700 Club í gærkvöldi. Að sögn sjónvarpsstöðvarinnar CNN sagði Robertson að Haíti-búar hefðu verið „undir hæl Frakka, þið vitið, Napóleons III eða svoleiðis. Og þeir komu saman og gerðu samning við djöfulinn. Þeir sögðu: Við munum þjóna þér ef þú frelsar okkur frá Frökkum.  Sönn saga. Og djöfullinn sagði: OK, það er samþykkt." 

Haítí-búar sigruðu franska nýlenduherra árið 1804 og lýstu yfir sjálfstæði.  

„Þið vitið að Haíti-búar gerðu uppreisn og fengu frelsi. En alla tíð síðan hafa þeir þurft að þola bölvun af ýmsu tagi," sagði Robertson sem verður áttræður á þessu ári.

Hann hefur áður tengt  náttúruhamfarir og hryðjuverkaárásir við fóstureyðingar í Bandaríkjunum. Skömmu eftir að fellibylurinn Katrína fór yfir Mexíkóflóa haustið 2005 með þeim afleiðingum að 1800 manns létu lífið í New Orleans, sagði Robertson í sjónvarpsþætti sínum: 

„Við höfum myrt yfir 40 milljónir ófæddra barna í Bandaríkjunum... Ég las í gær mjög áhugaverða bók um það sem Guð segir í gamla testamentinu um þá sem úthella saklausu blóði. Og (höfundurinn) sagði að landið muni æla þeim út sem það gera... Og við höfum komist að raun um að við getum ekki varið okkur gegn árásum, hvort heldur er frá hryðjuverkamönnum eða náttúrunni. Gæti verið samband þarna á milli?"

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í gær
Miðvikudaginn 17. mars