Ösku Gandhi dreift á haf út
Bloggað um fréttina
-
Edda Stefánsdóttir (netauga)Mahatma Gandhi
Hluti af ösku indversku frelsishetjunnar Mahatma Gandhi var dreift á haf út undan ströndum Suður-Afríku í morgun. Um tvö hundruð manns tóku þátt í athöfninni en 62 ár eru í dag síðan Gandhi var ráðinn af dögum.
BBC hefur eftir barnabarni hans, Ela Gandhi, að fjölskylduvinur hafi geymt öskuna áratugum saman, en hún hafi verið afhent fjölskyldunni í fyrra.
Eftir að Gandhi var ráðinn af dögum fyrir 62 árum síðan var ösku hans dreift á milli fjölskyldu, vina og fylgismanna. Ekki er vitað fyrir víst hversu margir fengu hluta af ösku hans árið 1948. Hefðin er sú að öskunni sé dreift yfir vatn stuttu eftir líkbrennslu og er talið að flestir hafi gert það á sínum tíma, en vinkona Gandhi sem fékk þennan hluta öskunnar þekkti ekki til hefða hindúa.
Auk fjölskyldu og vina voru suður-afrísk herskip við staðinn þar sem öskunni var dreift.
Mahatma Ghandi var ráðinn af dögum þann 30. janúar 1948. Hann bjó í Suður-Afríku síðasta 21 ár ævi sinnar þar sem hann starfaði sem lögfræðingur og aðgerðasinni.
Til baka








Senda inn efni

