[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Víkingalottó

Víkingalottó 17.3.10
5 6 36 37 38 43
28 41   39
Jóker
5 1 5 1 4  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Vættaborgir, 112 Reykjavík Vættaborgir Reykjavík
Barónsstígur, 101 Reykjavík Barónsstígur Reykjavík
Fagribær, 110 Reykjavík Fagribær Reykjavík
Kjarrmóar, 210 Garðabær Kjarrmóar Garðabær
Þingvallavatn-lóð, 801 Selfoss (dreifbýli) Þingvallavatn-lóð Selfoss (dreifbýli)
Álfaskeið, 220 Hafnarfjörður Álfaskeið Hafnarfjörður
Eikardalur, 260 Njarðvík Eikardalur Njarðvík
Sæviðarsund, 104 Reykjavík Sæviðarsund Reykjavík
Stórikriki, 270 Mosfellsbær Stórikriki Mosfellsbær
Börn betla fyrir utan kirkju í miðborg Addis Ababa  en heimilislaus maður sefur á jörðinni í bakgrunni.

Börn betla fyrir utan kirkju í miðborg Addis Ababa en heimilislaus maður sefur á jörðinni í bakgrunni. AP

Erlent | mbl.is | 6.2.2010 | 11:50

Leynd heimildamanna bönnuð í Eþíópíu

Ný hryðjuverkalög sem sett hafa verið í Eþíópíu svipta blaðamenn þeim rétti að halda heimildamönnum sínum leyndum, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá samskiptaráðuneyti landsins.

„Hryðjuverkalögin ýta til hliðar þeim rétti blaðamanna að leyna upplýsingum um heimildamenn sína þegar þeir flytja fréttir af hryðjuverkum," hefur AFP eftir ráðherranum Shimeles Kemal. Þetta sé gert með hliðsjón af þeim miklu hörmungum sem hryðjuverk valdi.

Aðeins eitt Afríkuland skákar Eþíópíu þegar kemur að því varpa blaðamönnum í fangelsi. Ekki er lengra en nokkrir dagar síðan dálkahöfundur var fangelsaður fyrir að gagnrýna forsætisráðherra landsins.  Mannréttindasamtökin Human Rights Watch lýstu áhyggjum sínum af því, áður en frumvarp hryðjuverkalaganna var samþykkt í fyrra, að hluta þess væri beint gegn fjölmiðlum landsins.

„Samkvæmt lögunum gæti blaðamaður sem tekur viðtal við stjórnarandstöðuþingmann eða stuðningsmann vopnaðra samtaka verið sagður  „hvetja til hryðjuverka" með því einu að lýsa viðhorfum viðmælandans," segja samtökin.

Ríkisstjórn Eþíópíu skilgreinir tilraunum til uppreisna sem staðið hafa yfir árum saman í héröðunum Oromo og Ogaden sem hryðjuverkastarfsemi.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Þriðjudaginn 16. mars