[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  20.3.2010
11 14 17 22 39 26
Jóker
0 0 8 1 9  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Grundarstígur, 101 Reykjavík Grundarstígur Reykjavík
Holtsgata, 101 Reykjavík Holtsgata Reykjavík
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Nýbýlavegur, 200 Kópavogur Nýbýlavegur Kópavogur
Álfheimar, 104 Reykjavík Álfheimar Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Mávahlíð , 105 Reykjavík Mávahlíð Reykjavík
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Vesturtún, 225 Álftanes Vesturtún Álftanes
Eyrarvegur, 600 Akureyri Eyrarvegur Akureyri
Ekkert hefur spurt til Faiza Ashraf, 26 ára norskrar konu, frá því á miðvikudagsmorgun í síðustu viku.

Ekkert hefur spurt til Faiza Ashraf, 26 ára norskrar konu, frá því á miðvikudagsmorgun í síðustu viku.

Erlent | mbl.is | 9.2.2010 | 13:29

Mannránið var greiði við annan

„Ég ætla ekki að meiða þig. Ég geri þetta fyrir Pakistana og fæ 100.000 fyrir,“ sagði mannræningi við Faiza Ashraf, 26 ára norska konu af pakístönskum ættum sem var rænt á miðvikudaginn var. Dagbladet í Noregi greinir í dag frá lögregluskýrslu um samtöl lögreglu við Ashraf eftir að henni var rænt.

Faiza Ashraf hringdi til lögreglunnar kl. 06.44 á miðvikudagsmorgun. Hún kynnti sig og sagði að maður sem hún þekkti ekki hafi rænt henni. Ashraf var í uppnámi og bað um hjálp. Símtalið varaði í tvær mínútur.

Hún kvaðst hafa verið á leið til vinnu sinnar í Osló þegar ráðista var á hana við stoppistöð. Hún kvaðst hafa tekist á við mannræningjann og hann slegið hana ítrekað í höfuðið.  Ashraf sagði að hún hafi verið lokuð niðri í farangursgeymslu dökklitaðs bíls. 

Fjarskiptamiðstöð lögreglunnar hringdi í Ashraf kl. kl. 06.52 og hún svaraði strax. Þá greindi hún frá því að ræninginn hafi stoppað bílinn, bundið hana og útskýrt hvers vegna hann rændi henni. Henni tókst fljótlega að losa aðra hendina. Símtalið stóð í 28 mínútur.

Faiza Ashraf nefndi mann sem hún grunaði um að standa á bakvið ránið. Sá er 28 ára gamall leigubílstjóri sem hafði ónáðað hana með símtölum og smáskilaboðum. Hann hefur verið úrskurðaður í fjögurra vikna gæsluvarðhald. 

Lögreglan hefur síðan reynt að hringja í síma Faiza Ashraf en ekki verið svarað. Það sem mannræninginn kvaðst hafa haft fyrir ómakið, 100.000 norskar krónur, samsvarar 2,168 milljónum íslenskra króna.

 

 

 

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Laugardaginn 20. mars
Föstudaginn 19. mars
Fimmtudaginn 18. mars