Samkynhneigðir á Malaví undir pressu
Yfirvöld á Malaví senda þau skilaboð til baráttumanna fyrir réttindum samkynhneigðra, sem hengdu upp plaköt og dreifðu nafnlausum augýsingapésum, að þeir verði að koma fram undir nafni.
Embættismaðurinn Kingsley Namakhwa segir það vera andstætt lögunum að standa fyrir slíkum áróðursherferðum nafnlaust. Á sama tíma ítrekar hann hinsvegar að samkynhneigð sé ólögleg í landinu og hver sá sem mæli fyrir henni verði lögsóttur.
Mannrétindasamtök hafa gagnrýnt stjórnvöld á Malaví harðlega undanfarið fyrir að stefna tveimur mönnum sem trúlofuðust hvor öðrum. Þeir Tiwonge Chimbalanga og Steven Monjeza eru taldir vera fyrsta samkynhneigða parið til að undirbúa brúðkaup. Þeir neita sökum um að stunda ósiðleg athæfi.
„Hvað ríkisstjórn Malaví varðar er afstaðan skýr, það eru bara tveir samkynhneigðir enn á Malaví, þeir Steven Monjeza og Tiwonge Chimbalanga," segir Namakhwa. „Ef það eru fleiri úti, þá skulu þeir gjöra svo vel að gefa sig fram." Lögreglan leitar nú logandi ljósi að manninum sem talið er að standi baki herferðinni fyrir réttindum samkynhneigðra.
Á plakötunum sem hengd voru upp stóðu slagorð s.s. „réttindi samkynhneigðra eru mannréttindi".
Til baka








Senda inn efni

