Segir NATO og Bandaríkin ógna Rússum
Yfirmaður rússneska þjóðaröryggisráðsins sagði í dag, að Atlantshafsbandalagið, NATO, sé enn alvarleg ógn við öryggi Rússlands. Þá sagði yfirmaður rússneska heraflans í dag, að eldflaugavarnakerfum Bandaríkjanna sé beint að Rússum þótt stjórnvöld í Washington haldi öðru fram.
„Við efumst stórlega um, að við verðum öruggari ef NATO stækkar. Í okkar augum er bandalagið ógnun og frekar alvarleg ógnun," sagði Nikolaí Patrushef, formaður rússneska þjóðaröryggisráðsins við rússneska fjölmiðla.
Anders Fogh Rasmussen, framkvæmdastjóri NATO, lýsti um helgina undrun á því, að Rússar skilgreindu NATO sem helstu hernaðarógnina í vestri í nýrri hernaðarstefnumörkun.
Rússar hafa lengi verið andvígir tilraunum fyrrum Sovétlýðvelda, svo sem Georgíu og Úkraínu, að ganga í NATO og samskipti bandalagsins og Rússa urðu mjög stirð þegar til átaka kom milli Rússa og Georgíumanna í ágúst 2008.
Talsmaður rússneska utanríkisráðuneytis sagði hins vegar í dag, að Rússar litu á stækkun NATO frekar en bandalagið sjálft sem ógnun við öryggi landsins.
Til baka








Senda inn efni


