
John Murtha formaður þingnefndar um varnarmál og Nancy Pelosi forseti þingsins. Reuters
Þingmaður lést eftir gallblöðruaðgerð
John Murtha, fulltrúadeildarþingmaður Demókrataflokksins frá Pennsylvaníu, lést í gær eftir að hafa gengist undir skurðaðgerð á gallblöðru.
Murtha var 77 ára gamall. Hann var fyrsti fyrrum hermaðurinn sem tók þátt í Víetnamstríðinu til að verða kjörinn á Bandaríkjaþing. Hann naut virðingar langt út fyrir flokkslínur.
Gagnrýni hans á hvernig Bush hafði staðið að Íraksstríðinu vakti mikla athygli árið 2006, ekki síst í ljósi þess að hún var borin fram af fyrrverandi hermanni. Murtha sagði að stefna Bush-stjórnarinnar í Írak hefði byggst á gallaðir stefnu sem hefði verið vafin inn í blekkingu. Hann krafðist þess að herinn yrði kallaður heim frá Írak.
Til baka








Senda inn efni

