[ Fara í meginmál | Forsíða | Veftré ]
mobile Fyrir farsíma | RSS þjónusta RSS | Podcast Podcast | Minnka letur Stærð Stækka letur
blog.is

Nýtt á mbl.is

Auglýsingar

Tenglar

Samgöngur

Lottó

Lottó  13.3.2010
6 8 10 22 37 7
Jóker
2 1 5 7 8  
Áskrift á www.lotto.is
Birt án ábyrgðar

Fasteignir:
mest skoðað

Ljósvallagata, 101 Reykjavík Ljósvallagata Reykjavík
Kópavogsbakki, 200 Kópavogur Kópavogsbakki Kópavogur
Barmahlíð, 105 Reykjavík Barmahlíð Reykjavík
Drápuhlíð, 105 Reykjavík Drápuhlíð Reykjavík
Hverfisgata, 101 Reykjavík Hverfisgata Reykjavík
Drafnarstígur, 101 Reykjavík Drafnarstígur Reykjavík
Lóuhraun, 220 Hafnarfjörður Lóuhraun Hafnarfjörður
Hafnarstræti, 600 Akureyri Hafnarstræti Akureyri
Ystasel, 109 Reykjavík Ystasel Reykjavík
Blásalir, 201 Kópavogur Blásalir Kópavogur
Bandarískir hermenn í Afganistan.

Bandarískir hermenn í Afganistan. Reuters

Erlent | AFP | 9.2.2010 | 17:10

Undirbúa stórárás í Afganistan

Bandaríkjaher er nú á síðustu metrunum í undirbúningi fyrir stórárás sem gerð verður á yfirráðasvæði Talíbana í suðurhluta Afganistan. Árásin verður sú umfangsmesta í 8 ára sögu stríðsins.

Þúsundir hermanna úr herjum Afganistan, Bandaríkjanna og Nató taka þátt í árásinni sem hlotið hefur vinnuheitið Mushtarak-aðgerðin. Tilgangurinn er að flæma Talíbana með öllu úr héraðinu Marjah, þar sem um 80.000 manns búa, og stækka þannig umráðasvæði afgönsku ríkisstjórnarinnar, sem nýtur stuðnings Vesturlanda.

Afganskir borgarar hafa síðustu daga flúið svæðið og flytja með sér búfénað, húsgögn og klæði í öruggt skjól. Flestir leita til borgarinnar Lashkar Gah, sem er höfuðborg Helmand héraðs í um 20 km fjarlægð.

Héraðsstjóri Helmand segist viðbúin því að taka á móti hópum af flóttafólki vegna árásarinnar, sem verður gerð einhvern tíma á næstu dögum. Tjaldbúðum hefur þegar verið skotið upp og matarbyrgðum safnað til að aðstoða flóttamennina. Hátt í 200 fjölskyldur hafa þegar flúið heimili sín til að vera fjarri stríðsátökunum, en talsmenn Nató hvetja fólk til að halda sig heima og heita því að allt verði gert til að almennir borgarar verði ekki fyrir áreiti vegna árásarinnar.

© 2010 Árvakur hf. Öll réttindi áskilin

Fara til baka Til baka

 

Erlent — Fleiri fréttir

Í dag
Í gær
Fimmtudaginn 18. mars
Miðvikudaginn 17. mars