47% Breta vilja úr ESB

Nær helmingur Breta eða 47% vill að Bretland fari úr Evrópusambandinu en þriðjungur vill halda áfram í ESB.

Þetta kemur fram í skoðanakönnun, sem breska fyrirtækið YouGov gerði 8. og 9. september og var úrtakið 1.948 manns.

Stuðningur við úrsögn er mikill hjá 60 ára og eldri eða 57% en 31% í þessum aldursflokki vill halda óbreyttri stöðu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert