Ók drukkinn á tvo lögreglumenn

Wikipedia/Schekinov Alexey Victorovich

Drukkinn rússneskur unglingspiltur tók bifreið trausta taki í borginni Novosibirsk í morgun og ók á tvo lögreglumenn sem létu lífið. Pilturinn, sem er 19 ára að aldri, hafði áður drukkið ótæplega af áfengi og lent í rifrildi við hóp ungmenna áður en hann stal bifreiðinni.

Því næst ók hann á nokkrar aðra bifreiðar áður samkvæmt frétt AFP en hann fór upp á gagnstétt og ók inn í hóp fólks sem var við guðþjónustu utandyra vegna páskanna með þeim afleiðingum að lögreglukona lét lífið og annar lögreglumaður slasaðist alvarlega. Hann lét skömmu síðar lífið á sjúkrahúsi. Pilturinn var í kjölfarið tekinn höndum. Búist er við að hann verði ákærður fyrir ölvunarakstur, skapa hættu í umferðinni og valda dauða lögreglumannanna. Verði hann sakfelldur gæti hann fengið allt að níu ára fangelsi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert