Framdi sjálfsvíg eftir ófarir Brasilíu

Leikmenn Brasilíu voru niðurlútir að leikslokum eftir að hafa þurft …
Leikmenn Brasilíu voru niðurlútir að leikslokum eftir að hafa þurft að lúta í lægra haldi fyrir Þjóðverjum með töluverðum mun. Mynd/AFP

Niðurstöður knattspyrnuleikja geta haft gríðarleg áhrif á stuðningsmenn liðanna. Margir hafa setið í angist sinni eftir 90 mínútna hrakfarir liðs síns, á sama hátt og gleðivíman ber suma ofurliði þegar vel gengur. 

Stelpa á táningsaldri í austurhluta Nepals svipti sjálfa sig lífi aðfaranótt miðvikudags, skömmu eftir að Brasilía hafði tapað 1-7 gegn sterku liði Þjóðverja. Var stúlkan mikill stuðningsmaður brasilíska liðsins.

Stúlkan fannst hangandi í reipi morguninn eftir leikinn á heimili sínu þar sem hún bjó með móður sinni, ömmu og afa en faðir hennar var við störf erlendis kvöldið örlagaríka. 

Lögreglan hefur hafið rannsókn á málinu og sent lík stúlkunnar til krufningar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert