Uppreisnarmenn í Úkraínu hafa birt myndband af því sem þeir segja vera flak að minnsta kosti annarrar orrustuþotnanna tveggja, sem skotnar voru niður yfir austurhluta Úkraínu í dag.
Í upphafi sögðust uppreisnarmenn hafa skotið vélarnar niður, en þjóðaröryggisráð Úkraínu segist hafa undir höndum gögn sem benda til að eldflaugunum hafi verið skotið af rússneskri grundu.