Brakið af vél Air Algerie fundið

Mynd/AFP

Herinn í Búrkína Fasó hefur staðfest að brakið af vél Air Algerie sé fundið. Vélin hrapaði yfir Sahara-eyðimörkinni rétt um klukkan 10 í dag. Ekki er enn vitað hvað olli því að flugvélin hrapaði. 

„Við höfum fundið alsírsku vélina. Brakið er staðsett í Malí, um 50 kílómetrum norður af landamærum Búrkína Fasó,“ sagði Gilbert Diendiere, herforingi sveitarinnar sem fann vélina. 

Vélin, sem var af gerðinni Douglas DC-9 hvarf af ratsjá í morgun á dularfullan hátt. 

Áður hefur komið fram að vélin stóðst skoðun í vikunni og var í góðu ástandi að sögn Patricks Gandils, yfirmanns frönsku flugmálastjórnarinnar. 

Flug AH5017 var á leið frá Burk­ina Faso til Als­ír þegar flug­vél­in hvarf á flugi fyr­ir ofan Malí snemma í morg­un. 116 farþegar voru í vél­inni og þar á meðal voru að minnsta kosti 50 fransk­ir rík­is­borg­ar­ar.

Ferð flugvélarinnar sem hrapaði í Sahara-eyðimörkinni
Ferð flugvélarinnar sem hrapaði í Sahara-eyðimörkinni
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert