Björn bjargar kráku frá drukknun

Björninn að bjarga krákunni.
Björninn að bjarga krákunni. Skjáskot af Youtube

Heimur dýranna kemur stöðugt á óvart. Hvað gerist þegar kráka fer ofan í tjörn, rétt fyrir framan trýnið á birni? Nú hann bjargar henni frá drukknun - en ekki hvað!

Þessi skemmtilega uppákoma átti sér stað í dýragarðinum í Búdapest í júní. Þar má sjá kráku aðframkomna við að reyna að komast upp úr tjörn í dýragarðinum. Björninn sér hana og bregst snöggt við. Um stund má halda að hann ætli að rífa hana í sig en allt kemur fyrir ekki. Hann kemur henni á þurrt og fer svo að éta...epli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert