Vill halda morðingja Lennons í fangelsi

Yoko Ono, ekkja Johns Lennons berst gegn því að morðingi …
Yoko Ono, ekkja Johns Lennons berst gegn því að morðingi hans fái reynslulausn. Mbl.is/Golli

Yoko Ono, ekkja tónlistamannsins Johns Lennons berst enn og aftur gegn því að morðingi Lennons fái reynslulausn úr fangelsi. Mark David Chapman, sem setið hefur í fangelsi frá árinu 1980 en dómurinn hljóðaði upp á 20 ára til lífstíðarfangelsi. 

Er þetta í áttunda skiptið sem Chapman sækir um reynslulausn og í öll skiptin hefur Ono tekið til máls og barist af hörku gegn því að Chapman verði að ósk sinni. Chapman þykir hafa sýnt góða hegðun í fangelsinu allt frá árinu 1994 en hefur samt sem áður ekki hlotið náð fyrir augum úrskurðarnefndarinnar sem tekur ákvörðun í máli hans. 

Ef Chapman fær ekki reynslulausn í þetta skiptið verður hann að bíða í tvö ár áður en hann getur aftur sótt um reynslulausn. 

Sjá frétt Daily News

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert