24 námamenn innilokaðir í Níkaragva

Námamenn í Níkaragva.
Námamenn í Níkaragva. AFP

Að minnsta kosti 24 námamenn eru fastir inni í gullnámu eftir að hluti námunnar hrundi. Björgunarmenn eru í óða önn að reyna að komast til námamannanna.

Tveir komust út ú námunni með því að grafa sér leið út. Einn er talinn af eftir slysið, en það hefur ekki fengist staðfest. Mikilli rigningu er kennt um hrunið, sem varð í gærmorgun. Fregnir af því bárust hins vegar ekki til björgunaraðila fyrr en undir kvöldið í gær.

„Maður getur heyrt að fólk er fast inni. við heyrum raddir koma innan úr námunni,“ segir Martha Lagos hjá almannavörnum í Níkaragva. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert