„Þegar ég flutti hingað var ég að æfa mig fyrir maraþon og var því alltaf hlaupandi um borgina," segir ung kona sem býður nú ferðamönnum upp á heldur nýstárlega skoðunarferð um Róm á Ítalíu.
Hún segist hafa séð marga ferðamenn, gangandi í hópum eða hlaupandi eins og hún, og velti því fyrir sér hvort ekki væri sniðugt að sýna ferðamönnunum það sem hún sér þegar hún hleypur um borgina.