Talning atkvæða stendur nú yfir í Skotlandi en hún hófst um leið og kjörstöðum var lokað klukkan níu í kvöld. Skoskir kjósendur gengu í dag til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort Skotland eigi að verða sjálfstætt ríki eða vera áfram hluti af breska konungdæminu
Búist er við fyrstu tölum á milli hálf eitt og eitt í nótt. Ekki er þó víst að mikið verði að marka tölurnar þar sem minnstu kjördæmin verða fyrst til að ljúka talningu.
Tölur úr stærstu bæjarfélögunum, Glasgow, Edinborg og Aberdeen koma líklega ekki fyrr en undir morgun. Um 25% atkvæðabærra manna búa í þeim þremur borgum og búist er við tölum þaðan á milli fjögur og fimm í nótt.
Kosningabaráttan hefur kveikt í mörgum Skotum sem hafa ekki sýnt mikinn áhuga á þjóðmálum hingað til. Fregnir bárust meðal annars af því að áttræð kona hefði kosið í fyrsta skipti á ævinni í dag.
„Mér líður öðruvísi í dag en í fyrri kosningum. Ég gæti verið að taka þátt í breytingum og atkvæði mitt skiptir máli,“ sagði hinn 23 ára Aidan Ford í samtali við AFP-fréttaveituna eftir að hann skilaði inn atkvæði sínu í dag.
Sumir komu klæddir skotapilsi til að skila inn atkvæðinu en almennt var mikið að á kjörstöðum í dag. Talið er að kjörsókn verði um 80%.
Elísabet drottning fylgist með stöðu mála frá heimili sínu.