Fimm fengu 20 ár fyrir nauðgun

Mennirnir réðust á stúlkuna í seinna skiptið þegar hún var …
Mennirnir réðust á stúlkuna í seinna skiptið þegar hún var á leið heim af lögreglustöð ásamt fjölskyldu sinni, en þar hafði hún tilkynnt um fyrri árásina. AFP

Dómstóll í austurhluta Indlands dæmdi í dag fimm menn í 20 ára fangesli en þeir nauðguðu og kveiktu í unglingsstúlku með þeim afleiðingum að hún lét lífið. Henni var nauðgað tvisvar í október á síðasta ári af sex mönnum nálægt heimili hennar í bænum Madhyagram, 25 kílómetrum norður af Kolkata.

Mennirnir voru handteknir og ákærðir vegna árásanna eftir að stúlkan lét lífið á sjúkrahúsi í á gamlárskvöld í fyrra. Mennirnir réðust á stúlkuna í seinna skiptið þegar hún var á leið heim af lögreglustöð ásamt fjölskyldu sinni, en þar hafði hún tilkynnt um fyrri árásina.  

Stúlkan var þunguð þegar hún lét lífið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert