Búið er að flytja lík Hönnu Witheridge heim frá Koh Tao á Taílandi. Fjölskylda hennar hefur nú sent frá sér yfirlýsingu, en hingað til hefur hún ekki tjáð sig um morðin. „Meginmarkmið ferðarinnar var að flytja okkar heittelskuðu Hönnu heim og fá upplýsingar um rannsóknina,“ segir í tilkynningunni.
Fjölskyldan er fegin að vera komin heim með Hönnu og mun hún fylgjast grannt með rannsókn málsins frá Bretlandi. „Fjölskylda okkar er niðurbrotin og þarf tíma til að syrgja í friði, líkt og vinir Hönnu.“
Lögregla telur hugsanlegt að hin bresku Hannah Witheridge og David Miller hafi verið myrt vegna afbrýðisemi. Leitað er að einhverjum sem gæti hafa átt í kynferðislegu sambandi við Witheridge eða Miller á síðustu dögunum sem þau lifðu.
Lík parsins fundust fyrir tæpri viku á strönd í Koh Tao. Lögregla á Taílandi hefur beðið lögreglu í Bretlandi að ræða við breska vini parsins til að fá upplýsingar um hegðun þeirra síðustu dagana sem þau lifðu.
Fundu lífsýni á líki konunnar
Þrír yfirheyrðir í tengslum við morðin
Breskir ferðamenn myrtir í Taílandi