Skvettu sýru á andlit stúlku

Augu stúlkunnar eru illa farin eftir árásina. Mynd úr safni.
Augu stúlkunnar eru illa farin eftir árásina. Mynd úr safni. AFP

16 ára stúlka frá Pakistan er alvarlega slösuð eftir að tveir karlmenn skvettu sýru á andlit hennar en hún hafði ítrekað hafnað beiðni frá öðrum þeirra um að giftast sér. Ráðist var á stúlkuna, Shabnam Batool, á heimili hennar í bænum Qaim Bharwana í vesturhluta landsins.

Mennirnir klifruðu upp vegg hússins á meðan fjölskylda stúlkunnar var í fastasvefni og skvettu því næst sýrunni á andlit Batool. Annar maðurinn hefur verið handtekinn en lögreglu hefur ekki tekist að hafa hendur í hári þess sem vildi ganga að eiga Batool.  

Að sögn læknis hlaut stúlkan brunasár á 90% andlitsins og þá eru augu hennar illa farin.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert