Bað mannræningja um að þyrma lífi sínu

Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna hafa hótað að taka Henning af lífi.
Liðsmenn hryðjuverkasamtakanna hafa hótað að taka Henning af lífi. AFP

Breski leigibílstjórinn Alan Henning biður liðsmenn hryðjuverkasamtakanna Ríki íslam um að þyrma lífi sínu á hljóðupptöku sem hefur borist fjölskyldu mannsins. Hann hefur verið í haldi liðsmanna samtakanna frá því í desember. 

Eiginkona Hennings, Barbara Henning, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fram kemur að liðsmenn samtakanna neiti að verða við ósk hennar um að hefja viðræður. 

„Ég og fólk sem kemur fram fyrir mína hönd höldum áfram að reyna ná til Alans,“ segir í yfirlýsingunni, sem fjallað er um á vef breska ríkisútvarpsins.

Henning, sem starfaði sem leigubílstjóri í Salford, var að flytja hjálpargögn er hann var numinn á brott í Sýrlandi í desember sl. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert