Skotárás í Alabama

AFP

Maður skaut tvo til bana og framdi síðan sjálfsmorð á UPS afgreiðslustöð í Birmingham í Alabama í Bandaríkjunum í dag.

Fréttastofan NBC greinir frá þessu.

Lögreglumenn voru kallaðir á stöðina klukkan 9:30 í morgun að staðartíma. Þar fundu þeir lík tveggja fórnarlamba og árásarmannsins.

Ekki er vitað hvort árásarmaðurinn hafi starfað á afgreiðslustöðinni.

Frétt NBC um málið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert