Drápu 900 kjúklinga með golfkylfu

Litlir kjúklingar.
Litlir kjúklingar. AFP

Lögreglan í Kaliforníu leitað nú að þeim sem braust inn í kjúklingahús í nágrenni Fresno og drap yfir 900 kjúklinga með golfkylfu.

Í frétt CBS fréttastofunnar um málið segir að talið sé illvirkinn hafi drepið 920 kjúklinga er hann braust inn í húsið þann 20. september.

„Þetta er sjúkleg hegðun. Og ef fólk getur fengið af sér að gera svona, þá gæti leitt til einhvers annars,“ segir lögreglustjórinn Chris Curtice í Fresno-sýslu.

Talið er að fleiri en einn maður hafi verið að verki.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert