24 eru látnir eftir flóð í kjölfar mikillar úrkomu í Níkaragva síðustu daga. Fleiri en 33 þúsund eru heimilislausir og margir dvelja í skýlum.
Ríkisstjórn landsins lét senda 5.000 pakka með matvælum á svæði þar sem mikil neyð ríkir. Óttast er að úrkoman geri það að verkum að moskítóflugum fjölgi verulega.