Berjast við eld í orkuveri

AFP

65 slökkviliðsmenn berjast nú við eldsvoða í Didcot-orkuverinu í Oxfordshire í Bretlandi. Tólf slökkviliðsbílar eru notaðir við verkið. Íbúar í nágrenninu hafa verið beðnir að loka gluggum og halda sig innandyra.

Að sögn lögreglu hefur enginn slasast í eldsvoðanum og þá er engra starfsmanna saknað. Ekki er talin hætta á að eldurinn nái að breiðast út í önnur hús á svæðinu. Upptök eldsins eru ókunn.

Frétt Sky-sjónvarpsstöðvarinnar.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert