Fundu lík 7 kvenna

AFP

Lík 7 kvenna fundust um helgina í Indiana í Bandaríkjunum. Fjórar kvennanna fundust látnar á laugardag, þar á meðal kona sem hafði verið kyrkt til dauða á hótelherbergi. Darren D Vann, 43 ára gamall maður, játaði að hafa myrt konuna, og vísaði lögreglumönnum í kjölfarið á lík þriggja kvenna til viðbótar. 

Lögregla fann lík kvennanna þriggja seint á laugardag og á sunnudagsmorgun, en þær höfðu allar verið myrtar. Ein þeirra hafði verið kyrkt, en dánarorsök hinna tveggja liggur ekki fyrir. 

Vann er í haldi lögreglu og er sagður tengdur öllum 7 morðunum. Lögreglumenn telja hann geta vísað á enn fleiri lík, en talið er að hann sé kaldrifjaður fjöldamorðingi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert